FH sópaði Íslandsmeisturum Fram úr leik í átta liða úrslitum Olísdeildar í kvöld með öruggum fimm marka sigri, 32:27, í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal. Þar með náðu FH-ingar að svara fyrir tap fyrir Fram í undanúrslitum úrslitakeppninnar á síðasta ári og senda meistarana í langt páskafrí sem þeim veitir ekki af eftir langt og strangt keppnistímabil.
FH mætir annaðhvort Haukum eða Aftureldingu í undanúrslitum. Hvort liðið það verður skýrist að loknum oddaleik á Ásvöllum á fimmtudaginn.
Hafnarfjarðarliðið var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda. Forskotið var fjögur mörk í hálfleik, 15:11. Fram tókst að minnka muninn í eitt mark snemma í síðari hálfleik áður en FH-ingar tóku til sinna ráða á nýjan leik.
Mörk Fram: Viktor Sigurðsson 6, Ívar Logi Styrmisson 5/1, Eiður Rafn Valsson 4, Kjartan Þór Júlíusson 3, Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 3, Rúnar Kárason 2, Dagur Fannar Möller 2, Theodór Sigurðsson 1, Erlendur Guðmundsson 1.
Varin skot: Arnór Máni Daðason 4, 23,5% – Breki Hrafn Árnason 3, 14,3%.
Mörk FH: Garðar Ingi Sindrason 9/4, Ómar Darri Sigurgeirsson 8, Birgir Már Birgisson 5, Kristófer Máni Jónasson 3, Einar Örn Sindrason 2, Jón Bjarni Ólafsson 2, Birkir Benediktsson 1, Símon Michael Guðjónsson 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 9/2, 37,5% – Jón Þórarinn Þorsteinsson 6, 33,3%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



