- Auglýsing -
Lena Margrét Valdimarsdóttir og liðsfélagar í sænska meistaraliðinu Skara HF unnu Kungälvs HK, 35:21, í 15. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gærkvöld.
Lena Margrét skoraði þrjú mörk í fimm skotum auk þess að gefa tvær stoðsendingar.
Skara HF situr í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig eftir 15 leiki. Liðið er stigi á undan Önnered sem situr í öðru sæti. Elín Klara Þorkelsdóttir og félagar í IK Sävehof eru í efsta sæti með 25 stig og eiga auk þess leik inni á Önnered, Skara HF og H65 Höör en síðastnefnda liðið er í fjórða sæti.
Staðan:
Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -

