- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fjölnir vann með átta mark mun í Kaplakrika

- Auglýsing -

Fjölnir færðist upp í 5. sæti Grill 66-deildar karla þegar liðið lagði ÍH með átta marka mun, 34:26, í fyrsta leik 19. umferðar í Kaplakrika í kvöld. Fjölnismenn voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 18:14. Þeim tókst að hrista af sér ÍH-liðið þegar á leið fyrri hálfleikinn.

Fjölnir hefur 21 stig eftir 19 leiki. Liðið á þrjár viðureignir eftir. Hörður er næstur á eftir Fjölni með 19 stig og á leik inni á Fjölnisliðið.

ÍH hefur átta stig í 11. og næst neðsta sæti. Aðeins HBH er neðar með sín fjögur stig.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.


Mörk ÍH: Brynjar Narfi Arndal 9, Bjarki Jóhannsson 5, Róbert Dagur Davíðsson 4, Daníel Breki Þorsteinsson 3, Stefán Kári Daníelsson 2, Hákon Ingi Garðarsson 1, Axel Þór Sigurþórsson 1, Dagur Aron Jónsson 1.
Varin skot: Kristján Rafn Oddsson 7.

Mörk Fjölnis: Óli Fannar Pedersen 8, Þorleifur Rafn Aðalsteinsson 6, Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson 4, Viktor Berg Grétarsson 4, Kristján Ingi Kjartansson 4, Alex Máni Oddnýjarson 3, Ari Magnússon 2, Brynjar Óli Kristjánsson 1, Victor Máni Matthíasson 1, Aron Breki Oddnýjarson 1.
Varin skot: Viktor Alex Ragnarsson 12.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -