Arnar Pétursson landsliðþjálfari kvenna í handknattleik hefur valið landsliðshópinn sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu í Þýskalandi og Hollandi. Arnar valdi 16 leikmenn. Fyrsti leikur Íslands á mótinu verður gegn Þýskalandi í Stuttgart 26. nóvember.
Fjórar af 16 konum hópsins taka þátt í stórmóti í fyrsta sinn; Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Lovísa Thompson, Rakel Oddný Guðmundsdóttir og Sara Sif Helgadóttir.
Markverðir:
Hafdís Renötudóttir, Valur (70/4).
Sara Sif Helgadóttir, Haukar (14/0).
Aðrir leikmenn:
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Fram (9/8).
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe (66/116).
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (12/25).
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (65/88).
Elín Klara Þorkelsdóttir, IK Sävehof (26/90).
Elín Rósa Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (31/59).
Elísa Elíasdóttir, Valur (24/19).
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (12/25).
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (27/17).
Lovísa Thompson, Valur (30/66).
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (3/2).
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (38/155).
Thea Imani Sturludóttir, Valur (91/197).
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (47/68).
Landsliðsþjálfari: Arnar Pétursson.
Aðstoðarþjálfari: Óskar Bjarni Óskarsson.
Markvarðaþjálfari: Hlynur Morthens.
Styrktarþjálfari: Hjörtur Hinriksson.
Sjúkraþjálfarar: Tinna Jökulsdóttir og Jóhanna Björk Gylfadóttir.
Liðsstjóri: Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir.
Landsliðið kemur saman mánudaginn 17. nóvember. Laugardaginn 22. nóvember mætir íslenska liðið færeyska landsliðinu í vináttuleik í Þórshöfn. Frá Þórshöfn verður farið til Stuttgart.
Leikir Íslands í riðlakeppni HM kvenna:
26. nóvember: Þýskaland - Ísland, kl. 17.
28. nóvember: Ísland - Serbía, kl. 19.30.
30. nóvember: Ísland - Úrúgvæ, kl. 14.30.
- Leikirnir fara fram í Porsche-Arena, Stuttgart.
- Leiktímar miðið við Ísland. Klukkan í Þýskalandi verður klukkustund á undan þegar þarna verður komið við sögu.
- Þrjú lið fara áfram í milliriðla.
- Neðsta liðið fer í keppnina um forsetabikarinn.



