Flugi frá Icelandair frá Keflavíkurflugvelli til Vogaflugvallar í Færeyjum hefur verið aflýst, eftir því sem fram kemur á vef Keflavíkurflugvallar. Til stóð að kvennalandsliðið færi með flugferðinni sem leggja átti af stað klukkan 10.35. Í uppsiglingu er óveður á nær öllu landinu með appelsínugulri aðvörun á sunnanverðu landinu og víðar sem á að standa fram eftir degi.
Ekki hafa borist upplýsingar frá HSÍ um hvort landsliðshópurinn fari með öðru flugi frá landinu í morgunsárið, t.d. til Kaupmannahafnar þaðan sem hægt er að fara til baka til Færeyja. Arnar Pétursson sagði við handbolta.is í gær að ef til þess kæmi að flugið til Færeyja félli niður verði tekin æfing hér á landi og þess freistað að fara frá landinu á morgun áleiðis til Færeyja.
Kvennalandsliðið mætir færeyska landsliðinu á miðvikudagskvöld í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik.



