Áfram heldur Stjarnan að styrka kvennalið sitt fyrir átökin í Olísdeildinni og Poweradebikarnum á næstu leiktíð. Rakel Guðjónsdótttir vinstri hornamaður frá Selfossi er nýjasta viðbótin. Rakel hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna.
Rakel er 24 ára gömul og hefur fram til þessa leikið með Selfossi.
„Mjög mikil styrking”
„Árin 2017-2019 þjálfaði ég Rakel í handknattleiks akademíu á Selfossi svo ég þekki vel til hennar. Hún er öflugur hornamaður með góða skottækni ásamt því að vera mjög vinnusöm. Það er mjög mikil styrking fyrir okkur í Garðabænum að fá hana og mikil tilhlökkun að fá að vinna aftur með henni í handboltanum,” er haft eftir Patreki Jóhannessyni þjálfara Stjörnunnar í tilkynningu.
Sú fjórða
Auk Rakelar hafa Magrét Einarsdóttir, markvörður, Sara Katrín Gunnarsdóttir og Aníta Björk Valgeirsdóttir gengið til liðs við Stjörnuna á undanförnum viku. Á móti kemur að Embla Steindórsdóttir hefur kvatt liðið og samið við Hauka.
Konur – helstu félagaskipti 2025