Fram mætir Val í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna. Það varð staðfest í kvöld eftir annan sigur Fram-liðsins á ÍR í síðari viðureign liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Lambhagahöllinni í kvöld, 29:25. Framarar unnu fyrri viðureignina, 31:27. Þar af leiðandi kemur ekki til oddaleiks.
Ráðgert er að fyrsti undanúrslitaleikur Vals og Fram fari fram í N1-höll Vals miðvikudaginn 15. apríl.
Framarar voru með undirtökin í leiknum frá upphafi til enda.
Mörk Fram: Hulda Dagsdóttir 9, Katrín Anna Ásmundsdóttir 5/3, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 4, Ásdís Guðmundsdóttir 4, Valgerður Arnalds 4, Harpa María Friðgeirsdóttir 3.
Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 11/2, 31,4% – Arna Sif Jónsdóttir 0.
Mörk ÍR: Sara Dögg Hjaltadóttir 9/3, Sylvía Sigríður Jónsdóttir 5, Matthildur Lilja Jónsdóttir 3, Anna María Aðalsteinsdóttir 3, Katrín Tinna Jensdóttir 2, Ásthildur Bertha Bjarkadóttir 2, María Leifsdóttir 1.
Varin skot: Sif Hallgrímsdóttir 6, 28,6% – Hildur Einarsdóttir 3/1, 25% – Ingunn María Brynjarsdóttir 1, 16,7%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



