Fram er talið líklegast liða til þess að vinna Olísdeild kvenna í handknattleik á komandi leiktíð sem hefst á föstudaginn samkvæmt spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna liðanna í deildinni. Spáin var opinberuð á blaðamannafundi sem nú stendur yfir.
Gangi spáin eftir munu Hafnarfjarðarliðin eiga erfitt uppdráttar í vetur. Nýliðum FH er spáð neðsta sætinu og Haukum næst neðsta sæti og fara þar af leiðandi í umspil um sæti í deildinni á leiktíðinni 2021/2022.
Sex efstu liðin fara í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn.
Röðin:
1.Fram
2.ÍBV
3.Valur
4. Stjarnan
5. KA/Þór
6.HK
7. Haukar
8. FH
Fyrstu leikir verða þessir:
Föstudaginn 11. september:
Stjarnan – FH kl. 18
Fram – HK kl. 18.30
Laugardagur 12. september:
Valur – Haukar 13.30
ÍBV – KA/Þór kl. 16