- Auglýsing -
Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði þrjú mörk og gaf eina stoðsendingu þegar lið hennar, Skara HF, vann VästeråsIrsta HF, 30:27, í annarri viðureign liðanna í dag í 8-liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Leikið var í Västerås.
Skara HF hefur þar með tvo vinninga en leikmenn VästeråsIrsta eru án vinnings. Næst mætast liðin í Skara miðvikudaginn 15. apríl. Langt hlé er á milli leiksins í dag og þess næsta skýrist af væntanlegum landsleikjum í undankeppni Evrópumótsins í næstu viku og um aðra helgi.
- Auglýsing -



