- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Gottfridsson var rekinn frá Pick Szeged – ætlar að leita réttar síns

- Auglýsing -

Jim Gottfridsson var fyrirvaralaust sagt upp þriggja ára samningi sínum hjá ungverska liðinu Pick Szeged. Hann segir frá þessu í yfirlýsingu í kvöld. Gottfridsson segir riftun samningsins hafa verið fyrirvaralausa og án skýringa enda hafi hún komið í opna skjöldu. Gottfridsson ætlar að leita réttar síns gagnvart félaginu.

Gottfridsson kom til Pick Szeged á síðasta ári eftir að hafa skrifað undir þriggja ára samning. Hann segist hafa séð fyrir sér að ljúka ferlinum hjá félaginu. „Mér er orðavant,“ segir Gottfridsson m.a. í tilkynningu sinni en hana er að finna hér fyrir neðan.

Eins og kom fram fyrr í dag tilkynnti Pick Szeged uppsögn á samningi sínum við Gottfridsson. Var það í framhaldi af óstaðfestum fréttum síðustu daga um að Svíinn væri kominn út í kuldann hjá félaginu.

Eitt athyglivert í þessu er sú staðreynd að Michael Apelgren þjálfari Pick Szegeg er einnig þjálfari sænska karlalandsliðsins.


Óvissa ríkir kringum hinn sænska Gottfridsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -