Fyrstu viðureignir undanúrslita umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik voru háðar í dag. Báðar voru þær fremur ójafnar. Grótta vann Víking með 13 marka mun, 29:16, í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi og Stjarnan lagði FH, 27:18, í Hekluhöllinni í Garðabæ. Vinna þarf tvær viðureignir til þess að komast áfram og í úrslit.
Liðin mætast á nýjan leik á miðvikudagskvöld í Virkinu, heimavelli Víkings, og í Kaplakrika.
Stjarnan – FH 27:18 (15:10).
Mörk Stjörnunnar: Natasja Hammer 10, Eva Björk Davíðsdóttir 4, Bryndís Hulda Ómarsdóttir 3, Rakel Dórothea Ágústsdóttir 2, Aníta Björk Valgeirsdóttir 2, Vigdís Arna Hjartardóttir 2, Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 1, Þóra Hrafnkelsdóttir 1, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 1, Rakel Theodórsdóttir 1.
Varin skot: Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 13.
Mörk FH: Thelma Dögg Einarsdóttir 5, Katrín Ósk Ástþórsdóttir 3, Ólafía Þóra Klein 3, Dagný Þorgilsdóttir 2, Eva Guðrúnardóttir Long 2, Elísa Björt Ágústsdóttir 1, Guðrún Ólafía Marinósdóttir 1, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 1.
Varin skot: Szonja Szöke 17, Sigrún Ásta Möller 2.
Grótta – Víkingur 29:16 (12:8).
Mörk Gróttu: Katrín S. Scheving Thorsteinsson 7, Edda Steingrímsdóttir 5, Ída Margrét Stefánsdóttir 5, Katrín Helga Sigurbergsdóttir 5, Katrín Arna Andradóttir 2, Hrafnhildur Hekla Grímsdóttir 2, Edda Sigurðardóttir 1, Lilja Hrund Stefánsdóttir 1, Svandís Birgisdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 16, Anna Karólína Ingadóttir 2.
Mörk Víkings: Valgerður Elín Snorradóttir 4, Helga Lúðvíka Hallgrímsdóttir 3, Ivana Jorna Dina Meincke 3, Auður Brynja Sölvadóttir 2, Sara Björg Davíðsdóttir 2, Andrea Ósk Þorkelsdóttir 1, Elín Ása Einarsdóttir 1.
Varin skot: Þyri Erla L. Sigurðardóttir 6, Klaudia Katarzyna Kondras 2.



