- Auglýsing -
Árlegt Hafnarfjarðarmóti í handknattleik karla hefst síðdegis í dag. Að þessu sinni fer mótið fram á Ásvöllum, heimavelli Hauka. Fjögur lið eru að vanda skráð til leiks. Að þessu sinni mæta Stjarnan og ÍBV til leiks auk Hafnarfjarðarliðanna, Hauka og Íslandsmeistara FH.
Frítt er inn á leikina en ekki kemur fram í tilkynningu hvort streymt verði frá viðureignunum.
Leikjadagskrá
Þriðjudagur 20. ágúst:
FH – ÍBV, kl. 18.
Haukar – Stjarnan, kl.20.
Fimmtudagur 22. ágúst:
Haukar – ÍBV, kl. 18.
FH – Stjarnan, kl. 20.
Laugardagur 24. ágúst:
Stjarnan – ÍBV, kl. 11.
FH – Haukar, kl. 13.
– [email protected]
- Auglýsing -