FH-ingar léku frábærlega á Ásvöllum í kvöld þegar þeir lögðu Hauka í annað sinn á keppnistímabilinu í Olísdeild karla, 32:25, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 17:12. Með sigrinum færðist FH upp í annað sæti Olísdeildarinnar, stigi fyrir ofan Hauka sem nú hafa tapað tveimur af síðustu þremur viðureignum sínum í deildinni. Hafnarfjörður er þar með áfram hvítur og þarf ekki snjóinn til.
Mikilvægur sigur Mosfellinga
Aftureldingarmenn náðu að reka af slyðruorðið eftir þrjá tapleiki í röð og vinna Stjörnuna, 29:28, í Myntkauphöllinni að Varmá. Sérlega mikilvægur en afar harðsóttur sigur hjá Aftureldingarmönnum áður en þeir fara í tveggja vikna hlé frá kappleikjum.
Mikilvægur Þorvaldur
Litlu mátti hins vegar muna að Stjarnan færi með bæði stigin frá Varmá. Liðið var tveimur mörkum yfir þegar liðlega átta mínútur voru til leiksloka. Aftureldingarmenn skiptu þá yfir í sjö á sex og skoruðu fjögur mörk og komust yfir, 27:25. Ekki síst munaði um vasklega framgöngu Þorvaldar Tryggvasonar á síðustu mínútunum, jafnt í vörn sem sókn.
Afturelding heldur fjórða sætinu, alltént um sinn, en Stjarnan er áfram í 10. sæti. Leikmenn liðsins munu væntanlega fylgjast grannt með viðureign Selfoss og Þórs á laugardaginn.

Léku eins og þeir sem valdið hafa
FH-ingar léku eins og þeir sem valdið hafa gegn Haukum í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum. Eftir liðlega 10 mínútna leik þá tóku þeir öll völd á leikvellinum. Daníel Freyr Andrésson varði allt hvað af tók á bak við frábæra vörn. Sóknarleikurinn var afar góður hjá FH-liðinu með Garðar Inga Sindrason í aðalhlutverki. Hann skoraði hvað eftir annað og mataði félaga sína á sendingum.

FH komst með sjö mörkum yfir síðla í síðari hálfleik. Haukar lögðu allt í sölurnar og minnkuðu muninn í þrjú mörk, 28:25. Nær komust þeir ekki og FH-ingar bættu við nokkrum mörkum þegar örvæntingarfullar tilraunir Hauka gengu alls ekki upp.
Liðin mætast aftur á sama stað eftir viku í undanúrslitum bikarkeppninnar.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Haukar – FH 25:32 (12:17).
Mörk Hauka: Andri Fannar Elísson 4/1, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 3, Össur Haraldsson 3, Sigurður Snær Sigurjónsson 3, Birkir Snær Steinsson 3, Skarphéðinn Ívar Einarsson 3, Arnór Róbertsson 2, Freyr Aronsson 2, Hergeir Grímsson 1, Ólafur Ægir Ólafsson 1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 8, 22,2% – Magnús Gunnar Karlsson 2, 33,3%.
Mörk FH: Símon Michael Guðjónsson 8/3, Garðar Ingi Sindrason 8, Ómar Darri Sigurgeirsson 6, Birgir Már Birgisson 3, Birkir Benediktsson 3, Einar Örn Sindrason 2, Jón Bjarni Ólafsson 1, Jón Þórarinn Þorsteinsson 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 17/2, 44,7% – Jón Þórarinn Þorsteinsson 5/1, 55,6%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Afturelding – Stjarnan 29:28 (16:15).
Mörk Aftureldingar: Harri Halldórsson 5, Ihor Kopyshynskyi 5/2, Ævar Smári Gunnarsson 5, Oscar Sven Leithoff Lykke 5, Árni Bragi Eyjólfsson 3, Þorvaldur Tryggvason 3, Kristján Ottó Hjálmsson 2, Ágúst Ingi Óskarsson 1.
Varin skot: Sigurjón Bragi Atlason 5, 22,7% – Einar Baldvin Baldvinsson 1, 8,3%.
Mörk Stjörnunnar: Hans Jörgen Ólafsson 10, Benedikt Marinó Herdísarson 7/2, Jóel Bernburg 5, Jón Ásgeir Eyjólfsson 2, Atli Hrafn Bernburg 2, Starri Friðriksson 2.
Varin skot: Adam Thorstensen 13, 31%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.




