Haukar leika til úrslita í bikarkeppninni í handknattleik á laugardaginn eftir sigur á Fram, 32:29, í stórskemmtilegri viðureign í undanúrslitum á Ásvöllum í kvöld, 32:29. Staðan var jöfn í hálfleik, 14:14. Þetta verður í 11. sinn sem Haukar leika til úrslita í bikarkeppninni og annað árið í röð en liðið vann Fram í úrslitaleik á síðasta ári. Síðar í kvöld kemur í ljós hvort andstæðingur Hauka verður Valur eða KA/Þór í úrslitaleiknum á Ásvöllum á laugardaginn klukkan 15.30.
Framarar voru með frumkvæði í fyrri hálfleik og náðu m.a. tvisvar tveggja marka forskoti.




Fljótlega í síðari hálfleik náðu Haukar að komast yfir. Mestur varð munurinn fjögur mörk, rétt fyrir miðjan fyrri hálfleik. Framliðið lagði ekki árar í bát og minnkaði muninn í eitt mark, 24:23. Fram tókst aldrei að komast yfir á ný. Haukar héldu yfirhöndinni, tveimur til þremur mörkum og voru leiddir áfram af stórleik Emblu Steindórsdóttur og Jóhönnu Margrétae Sigurðardóttur. Sú síðarnefnda fór af leikvelli skömmu fyrir leikslok, meidd á hné. Ekki er ljóst hvort meiðslin séu alvarleg.
Mörk Hauka: Embla Steindórsdóttir 8/3, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 7, Inga Dís Jóhannsdóttir 5, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 5, Alexandra Líf Arnarsdóttir 3, Sara Marie Odden 3, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 14,31,7%.
Mörk Fram: Ásdís Guðmundsdóttir 7/2, Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín 6, Harpa María Friðgeirsdóttir 5, Hulda Dagsdóttir 473, Katrín Anna Ásmundsdóttir 3, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 2, Valgerður Arnalds 2.
Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 12, 30.8% – Arna Sif Jónsdóttir 1.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Handbolti.is fylgdist með leik Haukar og Fram í textalýsingu hér fyrir neðan.



