Haukar unnu öruggan sigur á KA/Þór, 30:21, í upphafsleik 18. umferðar Olísdeildar kvenna í handknattleik í KA-heimilinu í kvöld. Haukarnir tóku öll völd í leiknum í síðari hálfleik eftir að aðeins skildu tvö mörk liðin að þegar 30 mínútur voru liðnar af leiktímanum, 15:13.
Með sigrinum tryggði Haukaliðið enn frekar veru sína í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig þegar þrjár umferðir eru eftir.
Fram undan er hlé í deildinni vegna úrslitaleikja bikarkeppninnar og landsleikja. Bæði lið leika næst í deildinni 14. mars. Þau eru hins vegar bæði í undanúrslitum bikarkeppninnar á miðvikudaginn. KA/Þór mætir Val en Haukar taka móti Fram.
Mörk KA/Þórs: Susanne Denise Pettersen 5, Trude Blestrud Hakonsen 4, Lydía Gunnþórsdóttir 4/4, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 3, Anna Þyrí Halldórsdóttir 2, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 1, Tinna Valgerður Gísladóttir 1.
Varin skot: Bernadett Leiner 7, 21,9% – Ástrós Anna Bender 2/1, 66,7%.
Mörk Hauka: Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 9/3, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 5, Inga Dís Jóhannsdóttir 5, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 3, Alexandra Líf Arnarsdóttir 3, Sara Marie Odden 3, Aníta Eik Jónsdóttir 1, Birta Lind Jóhannsdóttir 1, Embla Steindórsdóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 8, 32% – Erla Rut Viktorsdóttir 1, 25%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.



