Haukar höfðu betur í fyrstu viðureigninni við KA/Þór í úrslitakeppni Olísdeild kvenna í handknattleik í kvöld, 27:24. Leikið var í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Næst mætast liðin í KA-heimilinu á miðvikudagskvöld klukkan 18. KA/Þór verður að vinna þá viðureign til þess að knýja fram oddaleik á Ásvöllum eftir viku. Vinna þarf tvo leiki í fyrstu umferð en þrjá þegar komið verður í undanúrslit. ÍBV mætir sigurliðinu úr rimmu Hauka og KA/Þórs.
KA/Þórsliðið var ívið sterkara í fyrri hálfleik. Varnarleikur liðsins var góður og áttu Haukar í mestum vandræðum á tíðum. Þegar fyrri hálfleik var lokið fór KA/Þórsliðið með tveggja marka forskot inn í búningsklefa, 13:11.
Haukar sóttu í sig veðrið í síðari hálfleik. Varnarleikurinn var góður og Elísa Helga Sigurðardóttir nýtti tækifærið sem hún fékk í markinu til þess að sýna hvað í henni býr. Haukar komust yfir þegar rúmar 10 mínútur voru til leiksloka. Forskotið gaf liðið aldrei eftir.
Skarð var fyrir skildi í báðum liðum. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var ekki í leikmannahópi Hauka og Matea Lonac lék ekki með KA/Þór, ekkert fremur en í undanförnum leikjum. Markvörðurinn reyndi hefur verið fjarri keppnisvellinum síðan hún fékk höfuðhögg í viðureign gegn Val í janúar.
Mörk Hauka: Embla Steindórsdóttir 9/4, Inga Dís Jóhannsdóttir 7, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 5, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 4, Alexandra Líf Arnarsdóttir 1, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 1.
Varin skot: Elísa Helga Sigurðardóttir 9, 42,9% – Sara Sif Helgadóttir 4, 25%.
Mörk KA/Þórs: Susanne Denise Pettersen 8, Lydía Gunnþórsdóttir 6/4, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 3, Anna Þyrí Halldórsdóttir 2, Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir 2, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 1, Tinna Valgerður Gísladóttir 1, Trude Blestrud Hakonsen 1.
Varin skot: Bernadett Leiner 14, 34,1%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



