Hauki Þrastarsyni og samherjum í Rhein-Neckar Löwen tókst að leggja sputniklið Lemgo, 32:30, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Lengi vel leiksins blés ekki byrlega fyrir Hauki og félögum. Þeir voru fjórum mörkum undir í hálfleik, 17:13, og lengi fram eftir síðari hálfleik voru leikmenn Lemgo með yfirhöndina. Þeir urðu að gefa eftir á lokasprettinum og játa sig sigraða.
Haukur skoraði eitt mark og gaf tvær stoðsendingar. Svíinn Lukas Sandell fór á kostum og skoraði 13 mörk í 15 skotum. Jannik Kohlbacher skoraði sex mörk.
Niels Gerardus Versteijnen skoraði átta mörk fyrir Lemgo.
Skiptur hlutur hjá botnliðunum
Slag neðstu liðanna tveggja, Wetzlar og Leipzig, lauk með jafntefli, 28:28. Úrslit sem komu eiginlega hvorugu liði að gagni í botnbaráttunni.
Wetzlar, undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar, var marki undir í hálfleik á heimavelli, 17:16.
Filip Vistorop skoraði jöfnunarmarkið fyrir Wetzlar 45 sekúndum fyrir leikslok.
Blær Hinriksson skoraði ekki fyrir Leipzig í leiknum. Franz Semper var markahæstur með sex mörk og Dean Bombač var næstur með fimm mörk.
Stefan Cavor skoraði fimm mörk fyrir Wetzlar. Sænski markvörðurinn Andreas Palicka varði 11 skot, 30%, í annarri viðureign sinni fyrir félagið.
Staðan:




