- Auglýsing -
- Auglýsing -

Haukur Páll framlengir um tvö ár

Haukur Páll Hallgrímsson handknattleikmaður á Selfossi. Ljósmynd/UMF Selfoss
- Auglýsing -

Haukur Páll Hallgrímsson hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild Umf. Selfoss um tvö ár en liðið leikur í Grill 66-deild karla á nýhöfnu keppnistímabili.

Haukur Páll er leikstjórnandi uppalinn á Selfossi. Hann steig sín allra fyrstu skref með meistaraflokki haustið 2017 og varð hluti af U-liði Selfoss sem stofnað var ári síðar. Síðustu ár hefur Haukur svo vaxið upp í að verða fastur póstur í meistaraflokki.

„Það er gleðiefni að þessi ungi en reyndi leikmaður velji að halda áfram á vegferð sinni með okkur,“ segir í tilkynningu Handknattleiksdeildar Umf. Selfoss.

Selfoss vann Hauka2 í fyrstu umferð Grill 66-deildar á síðasta föstudag. Í annarri umferð sækir Selfossliðið heim Harðarmenn til Ísafjarðar á föstudaginn.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Grill 66-deild karla – fréttir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -