- Auglýsing -
Í dag verður leikið til úrslita á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik í Granolles á Spáni.
- Klukkan 13.30 mætast í leik um 3. sæti, Danmörk og Spánn.
- Klukkan 16.30 kljást Frakkland og Noregur um heimsmeistaratitilinn.
- Fyrri leikurinn verður sýndur á aðalrás RÚV en úrslitaleikurinn á RÚV2.
- Frakkland og Noregur er taplaus á mótinu. Franska landsliðið hefur unnið allar átta viðureignir sína. Norska landsliðið hefur unnið sjö leiki en gert eitt jafntefli, 30:30, við Svíþjóð.
- Frakkland hefur fimm sinnum unnið til verðlauna á HM kvenna frá 1999, tvenn gullverðlaun og þrenn silfurverðlaun. Síðast vann Frakkland heimsmeistaratitilinn 2017 þegar mótið var haldið í Þýskalandi.
- Noregur hefur tíu sinnum unnið til verðlauna á HM kvenna, þrenn gullverðlaun, fern silfurverðlaun og þrenn bronsverðlaun.
- Frakkland og Noregur léku til úrslita á HM 2017. Frakkar höfðu betur, 23:21.
- Hvernig sem úrslitaleikur Frakklands og Noregs fer í dag er öruggt að Þórir Hergeirsson, landsliðsþjálfari Noregs, vinnur til sinna 13. verðlauna á stórmóti síðan hann tók við sem aðalþjálfari norska kvennalandsliðsins af Marit Breivik árið eftir HM í Kína 2009.
- Noregur vann Frakkland, 22:20, í úrslitaleik Evrópumóts kvenna fyrir réttu ári.
- Frakkar urðu Ólympíumeistarar í sumar. Noregur hafnaði í þriðja sæti.
- Vinni norska landsliðið heimsmeistaratitilinn í dag jafnar það met Rússa sem oftast hafa unnið keppnina, fjórum sinnum.
- Auglýsing -