- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hörður skoraði átta mörk í röð og fór með sigur á Nesinu

- Auglýsing -

Hörður frá Ísafirði gerði sér lítið fyrir og lagði Gróttu, 31:28, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla í handknattleik í dag. Leikið var í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Gróttumenn verða að bíta í skjaldarrendur þegar liðin mætast öðru sinni á Ísafirði á miðvikudagskvöld nema að þeir ætli sér að fara í sumarleyfi. Hörður er í kjörstöðu eftir sigurinn í dag því tveir vinningar nægja til þess að komast í úrslit umspilsins við annaðhvort Fjölni eða Stjörnuna.


Grótta var töluvert sterkari framan af viðureigninni í Herzhöllinni í dag og hafði m.a. fjögurra marka forskot þegar fyrri hálfleikur var að baki, 14:10.

Harðarmenn sóttu jafnt og þétt í sig veðrið eftir því sem á leið síðari hálfleikinn. Pat virtist grípa um sig í herbúðum Gróttu. Hörður skoraði átta mörk í röð án þess að leikmenn Gróttu næðu að fá rönd við reist. Breyttist staðan úr 26:22 Gróttu í dag í 30:26, Herði í vil þegar rúmar fjórar mínútur voru til leiksloka. Gróttumenn urðu að játa sig sigraða og fara með skottið á milli lappanna vestur á miðvikudaginn.

Mörk Gróttu: Sæþór Atlason 6, Gísli Örn Alfreðsson 5, Kári Kvaran 5, Antoine Óskar Pantano 4, Gunnar Hrafn Pálsson 4, Bessi Teitsson 2, Ari Pétur Eiríksson 1, Atli Steinn Arnarson 1.
Varin skot: Hannes Pétur Hauksson 15.

Mörk Harðar: Kei Anegayama 6, Axel Vilji Bragason 4, Jose Esteves Lopes Neto 4, Pétur Þór Jónsson 4, Shuto Takenaka 4, Jhonatan C. R. Dos Santos 3, Yuji Moriya 3, Guilherme Carmignoli De Andrade 2, Kristján Hrafn Kristjánsson 1.
Varin skot: Stefán Freyr Jónsson 9, Hermann Alexander Hákonarson 7.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -