- Auglýsing -
Íþróttamaður ársins verður valinn í 70. skipit í kvöld í sameiginlegu hófi Samtaka íþróttafréttamanna og ÍSÍ í Silfurbergi í Hörpu. Tveir handknattleiksmenn, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon, eru í hópi þeirra 10 íþróttamanna sem urðu efstir í kjörinu sem fór fram á meðal 30 félagsmanna Samtaka íþróttafréttamanna í fyrri hluta desember. Allir félagsmenn skiluðu atkvæðaseðlum að þessu sinni.
Tíu efstu í kjöri íþróttamanns ársins 2025, í stafrófsröð:
- Dagur Kári Ólafsson, fimleikar.
- Eygló Fanndal Sturludóttir, ólympískar lyftingar.
- Gísli Þorgeir Kristjánsson, handbolti.
- Glódís Perla Viggósdóttir, fótbolti.
- Hákon Arnar Haraldsson, fótbolti.
- Hildur Maja Guðmundsdóttir, fimleikar.
- Jón Þór Sigurðsson, skotfimi.
- Ómar Ingi Magnússon, handbolti.
- Snæfríður Sól Jórunnardóttir, sund.
- Tryggvi Snær Hlinason, körfubolti.
Tveir handknattleiksþjálfarar eru á meðal þeirra þriggja sem koma til greina í kjöri á vali á þjálfara ársins:
- Ágúst Þór Jóhannsson, handbolti.
- Dagur Sigurðsson, handbolti.
- Heimir Hallgrímsson, fótbolti.
Tvö handboltalið koma til álita í valin á þjálfara ársins:
- Breiðablik kvenna, fótbolti.
- Fram karla, handbolti.
- Valur kvenna, handbolti.
Kjörinu verður lýst í beinni útsendingu á RÚV frá klukkan 19.40.
Íþróttamenn ársins úr röðum handknattleiksfólks í gegnum tíðina:
1964 – Sigríður Sigurðardóttir, Val.
1968 – Geir Hallsteinsson, FH.
1971 – Hjalti Einarsson, FH.
1989 – Alfreð Gíslason, Bidasoa.
1997 – Geir Sveinsson, Montpellier.
2002 – Ólafur Stefánsson, Magdeburg.
2003 – Ólafur Stefánsson, Ciudad Real.
2006 – Guðjón Valur Sigurðsson, Gummersbach.
2008 – Ólafur Stefánsson, Ciudad Real.
2009 – Ólafur Stefánsson, Ciudad Real.
2010 – Alexander Petersson, Füchse Berlin.
2012 – Aron Pálmarsson, THW Kiel.
2021 – Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg.
2022 – Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg.
2023 – Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg.
- Auglýsing -



