- Auglýsing -

Flugeldasýning í Katowice – 28 mörk í síðari hálfleik

Össur Haraldsson var valinn besti maður leiksins. Hér fagnar hann ásamt samherjum eftir sigurinn í morgun. Ljósmynd/IHF
- Auglýsing -


Íslenska landsliðið vann sannkallaðan stórsigur á landsliði Marokkó, 48:28, í síðari viðureign sinni í milliriðlakeppni heimsmeistaramóts 21 árs landsliða í Katrowice í Póllandi í morgun. Þar með vinnur Ísland milliriðil þrjú í keppnin liðanna í neðri hluta mótsins, sæti 17 til 32, og mætir annað hvort landsliði Póllands eða Argentínu í krossspili á fimmtudaginn. Pólverjar og Argentínumenn eru í efstir og jafnir í milliriðli eitt áður en þeir mætast í kvöld.

Sigurlið krossspilsleiksins leikur um 17. sæti mótsins á föstudag en tapliðið um 19. sætið.


Marokkóbúar héldu í við íslenska liðið fyrstu 20 mínútur leiksins í morgun. Eftir það tók við einstefna af hálfu íslensku piltanna. Þeir breytti stöðunni úr 13:12 í 19:13 á átta mínútna kafla áður en fyrri hálfleikur var úti. Staðan að honum loknum var 20:15.

Íslenska liðið hóf síðari hálfleik af fullum þunga og leikmenn landsliðs Marokkó sáu fljótt að þeir áttu við ofurefli að etja. Munurinn var kominn í 10 mörk eftir liðlega 10 mínútur, 29:19. Marokkómenn lögðu niður vopnin og íslenska liðið hreinlega yfirspilaði þá, jafn í vörn sem sókn. Alls skoruðu íslensku piltarnir 28 mörk á 30 mínútum í síðari hálfleik sem segir meira enn mörg orð um frammistöðuna og þá mótspyrnu sem var við að etja.


Mörk Íslands: Össur Haraldsson 11, Skarphéðinn Ívar Einarsson 8, Elmar Erlingsson 7, Birkir Snær Steinsson 4, Sigurður Páll Matthíasson 4, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 4, Hans Jörgen Ólafsson 3, Sigurður Snær Sigurjónsson 3, Hinrik Hugi Heiðarsson 2, Haukur Ingi Hauksson 1, Ívar Bessi Viðarsson 1.
Varin skot: Ísak Steinsson 14/1, 35% – Breki Hrafn Árnason 0.

Mörk Marokkó: Abdellah Razgui 7, Hamza Ouafik 5, Ouahib Ilyasse 5, Amjad Saa 4/3, Youness Mansari 2, Noam Bernard El Ouadrhiri 2, Omar El Khalifi 1, Mohamed Bouydarne 1, Lhoucine Ouhmou 1.
Varin skot: Akram Jbari 7, 16% – Mohames Larim 0.

Ítarlegri tölfræði.

HMU21-’25: Milliriðlar, úrslit, staðan, allir leikir

Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -