- Auglýsing -
Í dag verður dregið í Vínarborg í riðla lokakeppni Evrópumótsins í handknattleik kvenna. Mótið fer fram frá 28. nóvember til 15. desember í Austurríki, Ungverjalandi og Sviss.
Nafn Íslands verður á meðal þeirra 24 þjóða sem dregin verða úr skálunum upp úr klukkan 16 í dag. Tólf ár eru liðin frá því að Ísland var síðast með í lokakeppni Evrópumóts kvenna
Ísland er í þriðja styrkleikaflokki af fjórum. Flokkarnir eru hér fyrir neðan.
| 1.flokkur: | 2. flokkur: |
| Noregur | Þýskaland |
| Danmörk | Spánn |
| Svartfjallaland | Rúmenía |
| Frakkland | Ungverjaland |
| Svíþjóð | Sviss |
| Holland | Austurríki |
| 3. flokkur: | 4. flokkur: |
| Slóvenía | Tékkland |
| Króatía | Úkraína |
| Pólland | Tyrkland |
| Serbía | Færeyjar |
| N-Makedónía | Portúgal |
| Ísland | Slóvakía |
Dregið verður í sex fjögurra liða riðla.
- Ungverjaland verður í A-riðli í Debrecen.
- Svartfjallaland verður í B-riðli í Debrecen.
- Frakkland verður í C-riðli í Basel.
- Sviss verður í D-riði í Basel.
- Austurríki verður í E-riðli í Innsbruck.
- Þýskaland verður í F-riðli í Innsbruck.
- Riðlakeppnin verður leikin í Debrecen í Ungverjalandi, Basel í Sviss og Innsbruck í Austurríki.
- Milliriðlar verða leiknir í Debrecen og Vínarborg.
- Úrslitahelgi EM fer fram í Vínarborg.
- EM hefst 28. nóvember og lýkur með úrslitaleik 15. desember.
- Auglýsing -





