Tryggvi Þórisson og samherjar í Elverum halda efsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla eftir fjögurra marka sigur á Bergen Håndball, 33:29, á heimavelli í kvöld þegar átjánda umferð af 26 fór fram. Elverum er tveimur stigum á undan Kolstad sem einnig fór með sigur úr býtum í kvöld. Elverum hefur 33 stig.
Tryggvi skoraði eitt mark og var einu sinni vikið af leikvelli. Péter Lukács var markahæstur leikmanna Elverum með 10.
Benedikt atkvæðamestur
Benedikt Gunnar Óskarsson var atkvæðamestur Íslendinganna hjá Kolstad í sigri, 35:29, á Bækkelaget í Ekeberghallen í Ósló. Hann skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar. Simon Jeppsson var markahæstur með 12 mörk.
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvö mörk fyrir Kolstad og átti eina stoðsendingu.
Sigurjón Guðmundsson stóð um tíma í marki Kolstad. Hann varði þrjú skot, 19%.
Staðan í norsku úrvalsdeildinni:


