- Auglýsing -
Blomberg-Lippe settist í gær í efsta sæti efstu deildar þýska handknattleiksins í framhaldi af öruggum sigri á SV Union Halle-Neustadt, 33:20, á útivelli í 19. og næstsíðustu umferð. Íslensku landsliðskonurnar þrjár hjá BLomberg-Lippe komu mikið við sögu í sigurleiknum í SWH Arena.
- Andrea Jacobsen skoraði eitt mark og varði eitt skot í vörninni.
- Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði ekki mark en gaf sex stoðsendingar, var með eitt skapað færi, náði einu frákasti og var einu sinni vikið af leikvelli í tvær mínútur.
- Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði þrjú mörk, gaf fjórar stoðsendingar, var með eitt skapað færi og vann eitt vítakast.
Blomberg-Lippe er stigi á undan Borussia Dortmund. Síðarnefnda liðið á tvo leiki eftir en Blomberg-Lippe á einni viðureign ólokið. Dortmund mætir Oldenburg á miðvikudaginn áður en liðið sækir Blomberg-Lippe heim í lokaumferðinni næsta laugardag í úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn.
Eftir að deildarkeppninni lýkur tekur við hlé vegna landsleikja áður en úrslitakeppnin um þýska meistaratitilinn hefst um miðjan apríl.
Staðan:
Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -



