- Auglýsing -
Andrea Jacobsen landsliðskona í handknattleik og samherjar hennar í EH Aalborg tryggðu sér í kvöld oddaleik við Bertu Rut Harðardóttur og félaga í Holstebro í umspili næst efstu deildar danska handknattleiksins. Eftir tap á heimavelli, 27:20, um síðustu helgi svöruðu leikmenn EH Aalborg fyrir sig í kvöld með fjögurra marka sigri í Holstebro, 27:23.
Oddaleikurinn fer fram á heimavelli EH Aalborg á laugardaginn eftir viku.
Reyndar blés ekki endilega byrlega fyrir EH Aalborg eftir fyrri hálfleik í kvöld. Holstebro var tveimur mörkum yfir, 11:9.
Eftir því sem næst verður komist skoraði Andrea ekki mark fyrir EH Aalborg.
Því miður liggja ekki á lausu upplýsingar um hvort Berta Rut skoraði fyrir Holstebro.
- Auglýsing -