Íslenska landsliðið í handknattleik karla mætir egypska landsliðinu í tveimur vináttuleikjum í Kaíró um miðjan maí. Egyptar endurgjalda heimsókn íslenska landsliðsins og koma til Íslands í byrjun janúar á næsta ári til tveggja leikja, 7. og 9. janúar, áður en bæði landslið taka þátt í heimsmeistaramótinu sem fram fer í Þýskalandi.
Egypska landsliðið er tífaldir Afríkumeistarar í handknattleik karla og er auk þess eitt fremsta landslið heims í karlaflokki.
Núverandi landsliðsþjálfari Egypta er Spánverjinn Xavier Pascual sem einnig er þjálfari ungverska meistaraliðsins One Veszprém.
Egyptar hafa verið á meðal átta efstu þjóða á síðustu fjórum heimsmeistaramótum. Þeir urðu í 4. sæti á Ólympíuleikunum í Tókíó 2021 og í 5. sæti á leikunum í Frakklandi 2024.
Síðast mættust landslið þjóðanna á HM 2025 í Zagreb 22. janúar 2025. Ísland vann, 27:24.
Koma í stað umspilsins
Leikir íslenska landsliðsins við Egypta í maí koma í stað umspilsleikja fyrir HM sem Ísland tekur ekki þátt í að þessu sinni. Fjórða sætið á EM í janúar tryggði Íslandi farseðil á heimsmeistaramótið. Egyptar eru einnig öruggir með HM-sæti eftir að hafa unnið Afríkumeistaratitilinn í tíunda sinn í janúar.



