- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Íslenska landsliðið sækir Dani heim í september

Íslenska landsliðið hefur HM undirbúninginn með leik við danska landsliðið í september. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Kvennalandsliðið í handknattleik hefur undirbúning sinn fyrir heimsmeistaramótið með stórleik laugardaginn 20. september þegar danska landsliðið verður sótt heim Arena Nord í Frederikshavn. Danska landsliðið hefur um árabil verið eitt fremsta landslið heims og lék m.a. við norska landsliðið til úrslita á Evrópumótinu í Austurríki í desember sl.


Þetta verður einnig fyrsti leikur danska landsliðsins undir stjórn Helle Thomsen sem tók formlega við sem landsliðsþjálfari Dana í byrjun þessa mánaðar. Thomsen er fædd og uppalin í Frederikshavn á norðaustur horni Jótlands.

Góðar minningar úr Arena Nord

Íslenska landsliðið á góðar minningar frá Arena Nord í Frederikshavn en liðið lék þar í síðari hluta HM kvenna 2023 og vann þar forsetabikarinn.

Miðasala hefst 17. júní

Svo skemmtilega vill til að almenn miðasala á leikinn hefst þriðjudaginn 17. júní, eftir því sem danska handknattleikssambandið segir frá.

Landslið Danmerkur og Íslands í kvennaflokki hafa ekki mæst síðan þau voru saman í undankeppni EM 2018. Danir unnu báða leiki nokkuð örugglega.

Rúmum tveimur mánuðum eftir leikinn í Frederikshavn hefst heimsmeistaramót kvenna í handknattleik í Hollandi og Þýskalandi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -