- Auglýsing -
Ívar Logi Styrmisson hefur náð samkomulagi við handknattleiksdeild Fram um að samningur hans við félagið verði framlengdur til næstu tveggja ára. Ívar Logi kom til Fram frá Gróttu fyrir fjórum árum. Hann var markahæsti leikmaður Fram í Olísdeildinni í vetur með 110 mörk í 21 leik.
„Ívar er mikill baráttujaxl og höfum við séð hann vaxa í leiðtogahlutverki undanfarin misseri. Hann hefur sterka rödd í klefanum, leiðir liðið ekki bara í orði, heldur á borði. Það er alltaf hægt að reikna með 100% framlagi og ákefð frá Ívari,“ segir m.a. í tilkynningu handknattleiksdeildar Fram.
- Auglýsing -


