Jón Karl Einarsson hefur samið við Hauka á ný um að leika með meistaraflokki félagsins næstu ár. Jón Karl sem er uppalinn Haukamaður og lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokki tímabilið 2019-2020.
Jón Karl sem leikur að jafnaði í vinstra horninu kom svo meira inn í meistaraflokk tímabilið 2020-2021 en lenti svo í slæmum meiðslum á hné tímabilið 2021-2022 og þurfti að taka sér hlé frá handbolta um tíma.
Jón Karl náði að jafna sig af meiðslunum og lék með HK í Olís deildinni á láni tímabilið 2023-2024 og á nýliðnu tímabili lék hann með U-liði Hauka í Grill 66 deildinni þar sem hann endaði sem markahæsti leikmaður deildarinnar með 143 mörk í 15 leikjum.
„Það er ánægjulegt að Jón Karl hafi náð fyrri styrk og taki slaginn á ný með Haukum og verður ánægjulegt að sjá hann á parketinu á Ásvöllum eftir sumarið,“ segir í tilkynningu frá Haukum.