FH-ingar fengu fyrsta vinninginn í undanúrslitaeinvíginu við Hauka í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld. FH vann, 27:21, á heimavelli eftir að hafa verið marki undir í hálfleik, 12:11. Næsta viðureign liðanna verður í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum á föstudaginn.
Þótt sex mörkum hafi munað þegar upp var staðið þá gefur það ekki mynd af þeim jafna og spennandi leik sem fór fram í rúmar 56 mínútur í Kaplakrika. Lengst var jafnt á flestum tölum fram eftir öllum síðari hálfleik. Varnarleikur beggja liða var í öndvegi á kostnað sóknarleiksins. Það var sóknarleikurinn sem kom Haukum í koll þegar upp var staðið auk stórleiks Jóns Þórarins Þorsteinssonar markvarðar FH. Hann dró tennurnar í Haukum hægt og bítandi og alveg sérstaklega síðustu 10 mínúturnar með vörslum úr opnum færum. Haukum tókst aðeins að skora níu mörk í síðari hálfleik. Engu breytti þótt reynt væri að fara í sjö manna sóknarleik. FH-ingar virtust með ráð undir rifi hverju með Selfyssinginn í aðlahlutverki.
Auk Jóns Þorarins voru ungu mennirnir Ómar Darri Sigurgeirsson og Garðar Ingi Sindrason frábærir hjá FH.
Hjá Haukum var Freyr Aronsson allt í öllu en hann vantaði sannarlega meiri liðsauka frá samherjum sínum.
Mörk FH: Ómar Darri Sigurgeirsson 8, Garðar Ingi Sindrason 7/2, Birgir Már Birgisson 5, Einar Örn Sindrason 3, Jakob Martin Ásgeirsson 2, Ágúst Birgisson 1, Birkir Benediktsson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 12/1, 48% – Daníel Freyr Andrésson 2, 20%.
Mörk Hauka: Freyr Aronsson 7/3, Skarphéðinn Ívar Einarsson 3, Andri Fannar Elísson 2, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 2, Þráinn Orri Jónsson 2, Hergeir Grímsson 1, Jón Ómar Gíslason 1, Ólafur Ægir Ólafsson 1, Sigurður Snær Sigurjónsson 1, Össur Haraldsson 1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 9, 37,5% – Aron Rafn Eðvarðsson 1/1, 10%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.











