- Auglýsing -
Búið er að opna veginn um Kjalarnes og voru leikmenn KA í lest bíla sem beið við lokunarpóst í úthverfi Reykjavíkur. Andri Snær Stefánsson þjálfari KA staðfesti við handbolta.is klukkan 12.25 að lið hans væri lagt af stað síðasta spölinn til höfuðborgarinnar frá Kjalarnesi. Þar af leiðandi er fullvíst að KA-menn mæta Val í fyrsta undanúrslitaleik liðanna í Olísdeild karla í N1-höllinni klukkan 18.30 í kvöld.
Gangi veðurspár eftir er ósennilegt að KA-liðið komist norður í kvöld, að leik loknum.
Leikur Vals og KA verður sendur út á Handboltapassanum og hefst klukkan 18.30.
KA-menn lögðu í morgun ótrauðir af stað suður
- Auglýsing -


