- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

KA-menn lögðu í morgun ótrauðir af stað suður

- Auglýsing -

KA-menn eru á leiðinni suður yfir heiðar þar sem þeirra bíður í kvöld fyrsti undanúrslitaleikurinn við Val í úrslitakeppni Olísdeildar karla. Andri Snær Stefánsson þjálfari KA staðfesti við handbolta.is snemma í morgun að hann og liðsmenn væru lagðir af stað frá höfuðstað Norðurlands.


Vonir standa vitanlega til að KA-liðið komist á leiðarenda þrátt fyrir að veðurútlit sé ekki gott fyrir ferðalög milli landshluta. Yfirvofandi eru m.a. lokanir á vegum yfir Holtavörðuheiði og einnig um Kjalarnes.

Uppfært klukkan 12.05: KA-menn eru við vegalokun á Kjalarnesi en veginum var lokað klukkan 11.19. Vonir standa til að vegurinn verði opnaður þegar veðrið gengur niður þegar á daginn líður.

Uppfært klukkan 12.25: Búið er að opna veginn um Kjalarnes. Þar af leiðandi eru KA-menn lagðir af stað síðasta legginn til höfuðborgarinnar.

Viðureign Vals og KA skal hefjast klukkan 18.30 í N1-höll Vals á Hlíðarenda klukkan 18.30.

Annað kvöld mætast FH og Haukar í fyrsta sinn í rimmu undanúrslita í Kaplakrika klukkan 19.30. Veður setur tæplega strik í þá viðureign.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -