Danska úrvalsdeildarliðið Bjerringbro-Silkeborg hefur verið kært fyrir meinta hagræðingu úrslita. Frá þessu greinir TV2 í Danmörku. Mikil umræða hefur verið í dönskum handknattleik síðustu daga eftir að Bjerringbro-Silkeborg tapaði óvænt fyrir Grindsted, 27:26, í síðustu umferð úrvalsdeildar karla síðasta laugardag. Grindsed var fallið fyrir leikinn eftir að hafa vart átt sér viðreisnar von í vetur. TV2 segist hafa undir höndum tölvupóst sem staðfestir að kæra hafi borist danska íþróttasambandinu tveimur tímum eftir að viðureign Bjerringbro-Silkeborg lauk.
Grunur vaknaði
Fljótlega eftir að viðureign Bjerringbro-Silkeborg og Grindsted lauk vaknaði grunur um að maðkur hefði verið í mysunni í viðureigninni. Bjerringbro-Silkeborg var fyrir leikinn öruggt um sæti í úrslitakeppni átta efstu liða og mátti þar af leiðandi tapa leiknum. Hins vegar telja margir að tapið hafi skilað liði í auðveldari riðil í úrslitakeppninni. Átta efstu liðunum er skipt niður í tvo fjögurra liða riðla á fyrsta stigi úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn.
Handboltasérfræðingar TV2 voru ekki í vafa um að Bjerringbro-Silkeborg hefði tapað leiknum viljandi til að forðast Aalborg og GOG í úrslitakeppninni. Því hafa forráðamenn Bjerringbro-Silkeborg vísað á bug.
Vantar formlega beiðni
Danska íþróttasambandið segir við TV2 Sport að sambandið geti ekki tekið kæruna til athugunar nema að formleg beiðni um rannsókn berist frá danska handknattleikssambandinu (DanskHåndbold) vegna brots á óíþróttamannslegri hegðun. Slík beiðni hefur ekki borist.


