Kjartan Þór Júlíusson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Íslands- og bikarmeistara Fram. Kjartan Þór, sem er 21 árs, er örvhent skytta sem er uppalinn hjá Fram og á að baki farsælan feril hjá yngri flokkum félagsins og á undanförnum árum hjá meistaraflokki.
Kjartan Þór átti sæti í yngri landsliðunum undanfarin ár, var síðast í U20 ára landsliðinu sem varð í 7. sæti á EM í Slóveníu á liðnu ári. Meiðsli settu strik í reikning Kjartans Þórs um töluvert skeið. Hann virðist hafa jafnað sig vel og kom af krafti inn í Fram-liðið á síðari hluta síðasta keppnistímabils og varð bæði Íslands- og bikarmeistari.
„Hann þykir í dag einn af efnilegri skyttum landsins og því mikill fengur fyrir Fram að hafa hann áfram hjá félaginu,“ segir í tilkynningu Fram en orðrómur barst handbolta.is í vor um að félög hafi reynt að bera víurnar í Kjartan Þór.