„Ég er komin í gott spilform aftur að loknum mörgum leikjum með Blomberg-Lippe frá áramótum,“ sagði Andrea Jacobsen landsliðskona sem er mætt til leiks með landsliðinu en hún var því miður ekki með á HM í nóvember og í byrjun desember vegna meiðsla. Andrea mætir galvösk til leiks í kvöld á Ásvöllum klukkan 18 með stöllum sínum í landsliðinu í leik við Svartfellinga í undankeppni EM.
- Miðasala á leikinn á stubb.is.
„Ég er tilbúin í þetta verkefni,“ sagði Andrea ákveðin þegar handbolti.is hitti hana stuttlega fyrir eina af æfingum landsliðsins í upphafi vikunnar. „Það er allt opið fyrir viðureign kvöld. Eftir á að hyggja var viðureign okkar við Svartfellinga á HM okkar slakasti leikur á mótinu. Við getum gert margt betur en þá var,“ sagði Andrea.
Þurfum að fá eitthvað
„Ég vil nú ekki taka svo djúpt í árinni og segja að við séum með bakið upp við vegg en það er samt ljóst að við þurfum helst að fá eitthvað út úr þessum leik til þess auka möguleikana á sæti í lokakeppni EM. Möguleikarnir eru góðir,“ sagði Andrea Jacobsen landsliðskona í handknattleik.
Íslenska landsliðið tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum í undankeppninni í október, gegn Færeyingum á heimavelli og við Portúgal ytra. Eftir leikinn í kvöld heldur íslenska landsliðið til Podgorica og mætir Svartfellingum öðru sinni á sunnudaginn.
Síðustu tveir leikir undankeppninnar verða gegn Færeyingum í Þórshöfn 8. apríl og við Portúgal á Ásvöllum 12. apríl.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
A-landslið kvenna – fréttasíða.



