- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Kukobat mætti eftir langa fjarveru og varði vítakast

- Auglýsing -

Handknattleiksmarkvörðurinn Jovan Kukobat lék með HK í kvöld í fyrsta sinn í meira en ár. Þrátt fyrir langa fjarveru vegna erfiðra meiðsla sýndi Kukobat þann stutta tíma sem hann kom við sögu í leik HK og Þórs að hann hefur engu gleymt. Rúmlega þremur mínútum fyrir leikslok steig Kukobat inn á leikvöllinn og varði vítakast frá Arnóri Þorra Þorsteinssyni.


Vítakastið batt e.t.v. enda á síðustu von Þórsara um að koma til baka eftir að hafa misst tökin á HK-ingum á lokasprettinum.

HK vann leikinn, 36:31, en um sannkallaðan fjögurra stiga leik var að ræða fyrir bæði lið í harðri baráttu um að forðast fall.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -