Uppselt er á landsleik Íslands og Portúgals í undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik sunnudaginn eftir viku, 12. apríl í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. HSÍ tilkynnti í morgun að síðustu aðgöngumiðarnir hefðu verið sóttir í sölukerfi stubb.is. Allir aðgöngumiðarnir voru gefnir en Samherji borgar brúsann.
Þetta verður í fyrsta sinn í háa herrans tíð sem uppselt er á leik íslenska kvennalandsliðsins og þar af leiðandi er um afar góðan áfanga að ræða. Ekki var gefið upp hversu margir aðgöngumiðarnir voru en Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum rúmar hátt í 2.000 manns.
Ljóst er að landsliðið fær mikinn og góðan stuðning í afar mikilvægum leik í leið sinni að markmiðinu, að ná sæti í lokakeppni EM sem fram fer í fimm löndum Evrópu frá 3. til 20. desember.
Landsliðshópurinn hefur verið valinn
Leikur Íslands og Portúgals hefst klukkan 16 sunnudaginn eftir viku. Fram undan eru tvær síðustu umferðir riðlakeppninnar. Íslenska landsliðið mætir færeyska landsliðinu í Þórshöfn á miðvikudaginn áður en að viðureigninni á Ásvöllum kemur. Portúgalska landsliðið sækir fær svartfellska landsliðið í heimsókn til Porto á fimmtudaginn. Staðan í riðlinum er afar jöfn og spennandi og eiga öll fjögur liðin möguleika á sæti í lokakeppninni eins og sakir standa.
Íslenska landsliðið kemur saman í Þórshöfn á mánudaginn en nokkrir leikmenn eru að leika með félagsliðum sínum um helgina.



