Íslendingaliðið HSG Blomberg-Lippe varð í kvöld deildarmeistari í efstu deild þýska handknattleiksins eftir sigur á Dortmund á heimavelli, 33:31, í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar. Leikið var á heimavelli HSG Blomberg-Lippe, Sporthalle an der Ulmenallee. Þar með hefur Blomberg-Lippe einnig tryggt sér heimaleikjarétt í úrslitakeppninni sem hefst eftir miðjan mánuð.
Díana og Elín fóru mikinn
Díana Dögg Magnúsdóttir átti stórleik í kvöld. Hún skoraði 6 mörk í 7 skotum, gaf 3 stoðsendingar, var með 2 sköpuð færi, einn stolinn bolta, vann tvö fráköst og vann andstæðing einu sinni af leikvelli.
Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði 1 mark, gaf 3 stoðsendingar og vann 5 vítaköst. Þrisvar sinnum var leikmönnum Dortmund refsað með tveggja mínútna brottvísunum fyrir að stöðva Elínu Rósu á glannlegan hátt.
Andrea Jacobsen gaf fjórar stoðsendingar og skapaði 1 færi.
Í myndskeiði hér fyrir neðan sést hvar Díana Dögg tryggir Blomberg-Lippe sigurinn og fögnuðinn sem tók við í kjölfarið þegar flautað var til leiksloka.
Lítill tími til að fagna
Landsliðkonurnar þrjár fá lítinn tíma til þess að fagna því þær eiga að vera mættar til Færeyja á mánudaginn þar sem íslenska landsliðið hefur undirbúning fyrir viðureign við færeyska landsliðið á miðvikudagskvöld.
Spænski landsliðsmaðurinn Ona Vegue Pena og þýska landsliðskonan Nieke Kühne skoruðu níu mörk hvor og voru markahæstar hjá Blomberg-Lippe.
Önnur þýsk landsliðskona, Alina Grijseels, var markahæst hjá Dortmund ásamt Dana Bleckmann með sjö mörk. Emma Olsson fyrrverandi leikmaður Fram skoraði ekki mark í leiknum.
Vinna þar tvö leiki í undanúrslitum
HSG Blomberg-Lippe mætir Thüringer HC í undanúrslitum úrslitakeppninnar sem hefst síðar í mánuðinum. Borussia Dortmund leikur við HSG Bensheim/Auerbach. Vinna þarf tvo leiki til þess að komast í úrslitaeinvígið um meistaratitilinn.
Lokastaðan:



