- Auglýsing -
Ákveðið hefur verið að víxla á leikdögum í undanúrslitum Coca Cola-bikar karla og kvenna í meistaraflokki. Karlarnir leika til undanúrslita á miðvikudaginn í næstu viku í stað fimmtudagsins. Af því leiðir að undanúrslitaleikir kvenna verða fimmtudagskvöldið 10. mars.
Ástæða þessa er að gefa leikmönnum kvennalandsliðsins sólarhring lengri tíma eftir tvo landsleiki, þann síðari á sunndaginn, og ferðalags.
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitadaga Coca Cola-bikarsins sem hefst miðvikudaginn 9. mars og lýkur sunnudaginn 13. mars. Allir leikir fara fram á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Undanúrslitaleikjum í 3. og 4. aldursflokki er ekki lokið.
Miðvikudagur 9. mars: | ||
Coca cola bikar karla | 18:00 | FH/Þór – Valur |
Coca cola bikar karla | 20:15 | Selfoss – KA |
Fimmtudagur 10. mars: | ||
Coca cola bikar kvenna | 18:00 | KA/Þór – Fram |
Coca cola bikar kvenna | 20:15 | Valur – ÍBV |
Föstudagur 11. mars: | ||
3. flokkur karla | 18:00 | Fram – Selfoss |
3. flokkur kvenna | 20:15 | Haukar – Fram |
Laugardagur 12. mars: | ||
Coca cola bikar kvenna | 13:30 | Úrslit |
Coca cola bikar karla | 16:00 | Úrslit |
Sunnudagur 13. mars: | ||
4. flokkur karla yngri | 13:00 | KA – Haukar |
4. flokkur kvenna | 15:00 | KA/Þór – Afturelding |
4. flokkur karla eldri | 17:00 | KA – Afturelding |
Fréttin var uppfærð mánudaginn 7. mars.
- Auglýsing -