Sex leikir eru á dagskrá á Íslandsmótinu í handknattleik í kvöld. Reykjavíkurslagur verður í Olísdeild kvenna þegar Valur og Fram mætast í Origohöllinni við Hlíðarenda klukkan 20. Leikurinn er sá fyrsti í 2. umferð deildarinnar. Tveir leikir verða í Olísdeild karla og síðan hefst keppni í Grill 66-deild karla og kvenna. Handboltinn er þar með kominn á fulla ferð hér heima.
Stöð2 sport verður með beina útsendingu frá leikjunum tveimur í Origohöllinni.
Dagskrá kvöldsins í handboltanum er þessi:
Olísdeild kvenna:
Origohöllin: Valur – Fram, kl. 20
Olísdeild karla:
Origohöllin: Valur – ÍR, kl. 17.30
Hleðsluhöllin: Selfoss – KA, kl. 19.30
Grill 66-deild karla, 1.umferð:
Torfnes, Ísafirði: Hörður – V. Júpíters, kl. 19.30
Hertzhöllin: Kría – Fram U, kl. 20
Grill 66-deild kvenna, 1.umferð:
Austurberg: ÍR – Fjölnir/Fylkir, kl. 19.30