Engin breyting verður á niðurstöðu keppni í þýsku 2. deildinni í handknattleik þrátt fyrir að þurft hafi að endurtaka einn leik í dag, þremur vikum eftir að talið var að deildarkeppnin hefði verið leidd til lykta. Vegna kæru á framkvæmd leiks Dessau-Roßlauer HV og Tusem Essen sem fram fór fyrir tveimur mánuðum voru liðin dæmd til að mætast á ný í Essen.
Leikmenn liðanna, a.m.k. þeir sem enn eru samningsbundnir, voru kallaður úr sumarleyfi og tveir leikmenn sem voru með U21 árs landsliði Þýskalands á heimsmeistaramótinu sneru heim frá mótinu til að taka þátt í viðureigninni.
Eins og í viðureigninni í lok apríl þá vann Dessau-Roßlauer HV leikinn í Essen í dag, 30:24, og heldur þar með sæti sínu. ASV Hamm-Westfalen fellur en liðið hefði haldið sæti sínu með sigri Essen og lið Dessau-Roßlauer HV fallið í staðinn.
Tusem Essen var ekki með sitt sterkasta lið í leiknum í dag enda ekkert að mjög miklu að keppa. Liðið hefði reyndar með sigri geta komist hjá einni umferð í bikarkeppninni með sigri. Þegar á hólminn var komið reyndist sú staðreynd ekki vera keppikefli af þessu sinni.
Nánar er sagt frá tilefni þess að liðin mættust aftur í dag í greininni hér fyrir neðan: