„Við áttum bara ekkert skilið úr þessum leik. Þeir voru betri á öllum sviðum frá byrjun,“ sagði Gunnar Magnússon þjálfari Hauka vonsvikinn eftir fjögurra marka tap, 26:22, fyrir Aftureldingu í annarri viðureign liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld.
Fallið var hátt hjá Haukum frá fyrstu viðureigninni þegar þeir fóru á kostum og unnu með átta marka mun, 34:26.
„Ég er sérstaklega óánægður með fyrstu 15 mínútur leiksins. Það var eins og við værum ekki á svæðinu. Eftir það vorum við í brekku,“ sagði Gunnar sem var búinn að taka tvö af þremur leikhléum sínum eftir liðlega 20 mínútna leik enda á kafla sex marka munur, Mosfellingum í vil.
„Það voru reyndar augnablik í síðari hálfleik þar sem við áttum möguleika á að komast inn í leikinn en því miður þá var enginn „böffer“ eftir slæman upphafskafla, ekki svigrúm fyrir fleiri mistök. Það er bara leitt að segja það en Aftureldingarmenn vildu þetta meira í kvöld og uppskáru samkvæmt því,“ sagði Gunnar Magnússon þjálfari Hauka sem mætir galvaskur með sína menn til leiks á fimmtudaginn í oddaleik á heimavelli.
Afturelding barðist fyrir oddaleik – Einar Baldvin var frábær
Fórum í gömlu gildin sem hafa reynst okkur best


