Leó Friðriksson hefur gengið á ný til liðs við KA eftir eins árs veru með Þór. Leó skrifaði undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA. Leó sem er uppalinn hjá KA lék með Þór í Grill 66-deildinni síðasta vetur en liðið vann deildina og verður einn andstæðinga KA í Olísdeildinni á næstu leiktíð.
Leó er 18 ára gamall og efnileg vinstri skytta. Hann var sigursæll með yngri flokkum KA undanfarin ár og þá hefur hann verið valinn til úrtaksæfinga hjá yngri landsliðunum.
„Það er afar gott að fá þennan öfluga kappa aftur heim en KA stefnir á að byggja upp öflugt lið þar sem kjarninn er uppfullur af ungum og metnaðarfullum uppöldum leikmönnum félagsins. Andri Snær Stefánsson sem tók við stjórn liðsins á dögunum er afar reyndur í þjálfun og þróun yngri leikmanna og verður spennandi að fylgjast með framþróun liðsins næstu árin. Við bjóðum Leó innilega velkominn aftur heim og hlökkum til að fylgjast með honum í gulu og bláu treyjunni næstu árin,“ segir í tilkynningu KA.
Karlar – helstu félagaskipti 2025