- Auglýsing -
Ola Lindgren fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsþjálfari Svía er hættur störfum hjá HK Karlskrona hvar hann hefur verið aðstoðarþjálfari um skeið. HK Karlskrona þarf að draga saman seglin að sögn Blekinge Läns Tidning og nýta peninga sína í annað en Lindgren.
HF Karlskrona færðist upp í sænsku úrvalsdeildina vorið 2023 og náði afar góðum árangri á nýliðnu tímabili, hafnaði í fjórða sæti úrvalsdeildar.
Á tímabili voru þrír íslenskir handknattleiksmenn auk Phil Döhler sem lengi lék með FH. Aðeins Ólafur Andrés Guðmundsson er eftir af þremenningunum auk þess sem Döhler er horfin á braut.
Lindgren hefur verið landsliðsþjálfari Finna frá 2019.
- Auglýsing -