Stjórnendur þýsku deildarkeppninnar í handknattleik karla standa frammi fyrir óvenjulegum vanda. Hann er sá að forsvarsmenn nokkurra liða 3. deildar hafa ekki minnsta áhuga á að færast upp í aðra deild. Segja þeir félög sín ekki hafa efni á að færast upp um deild.
Þriðja deild karla er leikin í fjórum svæðisskiptum hlutum. Ekkert liðanna sem leikur í suðurhluta 3. deildar vill taka sæti í 2. deild, svo dæmi sé tekið.
Fjárhagslega er 2. deildin ekki aðlaðandi skref fyrir mörg félög. Ferðakostnaður hækkar, meiri kostnaður við leikmenn, strangari leyfiskröfur, auk yfirgripsmeira starfs við alls kyns skipulagningu og skrifstofustúss. Til viðbótar aukast tekjurnar ekki að sama skapi við að færast upp um deild. Þess vegna vilja menn áfram sitja við sinn keip meðan stjórnendur deildarkeppninnar vita ekki hvað skuli til bragðs taka.


