U19 ára landslið kvenna verður í riðli með Þýskalandi, Rúmeníu og Portúgal á Evrópumeistaramótinu sem haldið verður í Rúmeníu 6. til 16. júlí í sumar. Dregið var í fjóra fjögurra liða riðla fyrir stundu. Rúmenar völdu að leika í B-riðli og mæta þar með m.a. íslenska landsliðinu.
Uppistaðan í U19 ára landsliðinu eru leikmenn sem stóðu sig frábærlega á HM 18 ára landsliða á síðasta sumri og hrepptu áttunda sætið af 32 liðum. Árangurinn á HM fleytti ekki bara U19 ára landsliðinu inn á EM í sumar heldur einnig U17 ára landsliðinu en líka var dregið í riðla fyrir EM 17 ára landsliða í morgun eins og segir frá hér.
Ísland var í fjórða styrkleikaflokki þegar dregið var í riðlana.
Mótið fer fram í nágrannabæjunum Pitesti og Mioveni í Rúmeníu og skýrist væntanlega fljótlega í hvorum bænum leikið verður í B-riðli.
Pitesti og Mioveni eru á að giska um 120 km norðvestur af Búkarest.
Riðlaskiptingin er þessi:
A-riðill: | B-riðill: | C-riðill: | D-riðill: |
Króatía | Þýskaland | Ungverjaland | Danmörk |
Sviss | Rúmenía | Noregur | Svartfjallaland |
Svíþjóð | Portúgal | Frakkland | Tékkland |
Holland | Ísland | Serbía | N-Makedónía |
U19 ára landsliðið leikur tvo leiki við Tékka í Most um næstu helgi. Nýverið var valinn hópur til æfinga og þátttöku í leikjunum. Æfingar hófust í gær.
Leikmannahópinn er að finna í meðfylgjandi frétt.