- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Logi skrifar undir nýjan samning við KA

Logi Gautason t.h. ásamt Jóni Heiðari Sigurðssyni, formanni handknattleiksdeildar KA. Ljósmynd/KA
- Auglýsing -


Logi Gautason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA. Logi hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína í vinstra horninu á undanförnum árum með KA-liðinu en hann tók við hlutverki bróður síns, Dags, þegar hann hélt utan fyrir tveimur árum.


„Það er fagnaðarefni að Logi skuli ætla að vera áfram í herbúðum KA. Logi er einstaklega skemmtilegur drengur sem hefur mikla burði til þess að verða einn fremsti hornamaður deildarinnar með réttu hugarfari og góðum æfingum. Hann hefur sýnt það hingað til að hann er óhræddur við að taka færin sín og nýtir þau vel. Ég sé mikla framtíð fyrir Loga hjá KA og í handboltanum,“ sagði Andri Snær Stefánsson, nýráðinn þjálfari KA í tilkynningu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -