- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Mark var ekki dæmt gilt vegna eldingar

- Auglýsing -

Sérstætt atvik átti sér stað á 57. mínútu leiks Vals og KA í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld þegar ljósin blikkuðu í eina sekúndu í N1-höllinni. Blikkið, sem var að völdum eldingar, olli því að mark sem Agnar Smári Jónsson leikmaður Vals skoraði var ekki dæmt gild vegna þess að markvörður KA, Bruno Bernat missi sjónar af boltanum er ljósin dofnuðu þetta sannkallaða augnablik.


Dómararnir Gunnar Óli Gústafsson og Bjarki Bóasson létu atvikið ekki slá sig út af laginu enda ýmsu vanir. Þeir létu Valsmenn hefja sókn á ný sem endaði með löglegu marki í fullri birtu.

Það vildi til að viðureignin var síður en svo jöfn og svo mark til eða frá skipti ekki máli. Valur vann leikinn með 18 marka mun, 39:21.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -