- Auglýsing -
Ísak Steinsson, markvörður og liðsfélagar í Drammen, vann Kristiansand TH í miklum markaleik á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld, 46:35, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 26:21.
Varnarleikurinn sat algjörlega á hakanum í leiknum eins og tölurnar gefa til kynna. Varð það m.a. til þess að markverðirnir áttu erfitt uppdráttar. Ísak stóð lengst af í marki Drammen. Hann varði sex skot, 21%. Oscar Larsen Syvertsen, samherji Ísaks í markinu, fékk ekki við neitt ráðið þann tíma sem hann fékk í markinu og varði tvö skot.
Drammen er í 5. sæti deildarinnar með 25 stig eftir 19 leiki en sjö umferðir eru eftir af deildarkeppninni.
Staðan:
Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -


